Fyrir ofan himininn

Wake up, it's time to play

31.07.2008 23:22:56 / Minkurinn

Bjarni Páll

Mig langar að skrifa nokkur orð Bjarna Pál, vin minn sem lést nýlega.
Bjarni Páll var með betri manneskjum sem ég hef kynnst. Hann var góður, fallegur, skemmtilegur, umhyggjusamur og yfir höfuð drengur sem hver mætti kalla sig heppinn að fá að kynnast. Mér þótti afskaplega vænt um hann og ég mun sakna hans.
Að sitja í Neskirkju í dag og hlusta á prestinn tala um Bjarna var með súrrealískustu upplifunum sem ég veit. Þetta á ekki að gerast. Maður á ekki að þurfa að fara í jarðarfarir hjá tvítugu fólki. En lífið er ósanngjarnt, það er eina ástæðan fyrir því að svona góður strákur hafi lent í því helvíti sem krabbamein er.
Ég vil reyna að trúa því að hann sé á betri stað, það sé allt í lagi núna, hann þurfi ekki að þjást, þurfi ekki að sitja í hjólastól, þurfi ekki að bryðja morfín stanslaust til þess að komast í gegnum daginn. Ég vil virkilega trúa því að það sé eitthvað á bakvið þetta en það er erfitt að trúa á einhver æðri máttarvöld sem leyfa svona hlutum að gerast. Það er gífurlega erfitt að sjá einhvern tilgang í því að svipta góða manneskju lífinu og að kvelja foreldra hans, systkini og alla þá sem þóttu vænt um hann, því það voru margir.
Ég spjallaði við Miriam, vinkonu mína, í gærkvöldi á meðan ég velti fyrir mér asnalegum hlutum eins og í hverju ég gæti verið í jarðarförinni. Ég kveið bara fyrir deginum í dag. Hún þekkir þessa tilfinningu, hún missti góða vinkonu fyrir tæpum tveimur árum og ég er henni þakklát fyrir stuðninginn.
Ég sagði henni frá draumi sem mig dreymdi stuttu eftir að Bjarni dó. Við vorum öll saman, "fjölskyldan" af Jamboree. Við vissum að hann ætti að deyja daginn eftir og þess vegna fékk hann að vera einn dag með okkur, alveg hress og hraustur, hárið vaxið aftur og ekkert nema gleði frá honum. Eins sár og þessi draumur var túlkaði Miriam hann mjög fallega: Bjarni var að segja mér að þetta væri allt í lagi, honum liði vel núna. Ég vildi bara að ég hefði getað kvatt hann...
Þeir (ef einhverjir lesa þetta þ.e.a.s.) sem vilja kíkja á bloggið hans: http://bjarnipall.bloggar.is

Guð geymi þig Bjarni minn, mér þykir innilega vænt um þig og vona að þér líði vel.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 15:17:38 / Minkurinn

I'm eighteen...

...and I don't know what I want.
Eighteen, I just don't know what I want.
Eighteen, I gotta get away.
I gotta get out of this place.
I'll go runnin' in outer space again...



» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 17:21:19 / Minkurinn

Vígsla

Mig langar að segja frá því að ég var í djáknavígslu frænku minnar áðan og þar á eftir í kaffiboði heima hjá biskupi Íslands.
Hann á sófasett frá Hannesi Hafstein, "Velkomin" skilti á swahili og góða súkkulaðiköku. Það var gaman að þessu...

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 22:05:38 / Minkurinn

Dönskustúdent, ja for helvede

Nei, Margrét er ekki dauð, en hún er búin með dönsku að eilífu!
HAHAHA!
Jæja, ég er með svona einn eða tvo hluti til að röfla aðeins um til þess að blogga nú til tilbreytingar.

Ég ætla að byrja á því að vera dálítið menningarleg og tala um tvær góðar leiksýningar sem ég sá nýverið. Sú fyrri er Brák, einleikur um Þorgerði brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur sem sýnd er í Landnámssetrinu í Borgarfirði. Þetta fannst mér alveg stórskemmtileg sýning. Hún er sett fram á mjög svipaðan hátt og fyrirrennarar hennar, Ormstunga og Mr. Skallagrímsson; frekar hröð, fræðandi, tengsl við áhorfendur og afskaplega fyndin. Ef verðið skiptir ekki máli (3000kr fyrir miðann, 800kr í gönginn, bensínkostnaður fram og til baka, nema svo vilji til að tilvonandi áhorfandi búi úti í rassgati/Borgarfirði) þá er þetta algjörlega sýning til að fara á. Sú seinni er Engisprettur eftir Biljana Srbljanovic sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu. Pabbi lýsti þessu sem "leikarasýningu" og það er nokkuð rétt hjá honum. Þetta höfðar frekar til hins sjónræna og hæfileika leikaranna í karaktersköpun en hreins skemmtanagildis fyrir hinn almenna áhorfanda. Þetta er mjög falleg sýning, nokkuð fyndin á köflum en líka frekar sorgleg og maður finnur til samúðar með persónunum. Hins vegar leiðist mér Guðrún Gísladóttir svoooo mikið. Góð sýning fyrir þá sem hafa gaman af vel gerðum sýningum.

Og þá í allt aðra sálma, að því stórskemmtilega umræðuefni, slæmu klámi. Það er náttúrulega til þvílík yfirþyrmandi magn af svoleiðis að það er eiginlega ekki fyndið.
Jú, það er samt dálítið fyndið, sérstaklega þegar þetta fólk reynir að leika, það er baaaara fyndið...
Allavega. Eins og margir kunna að hafa kynnt sér er til klám í öllum stærðum og gerðum og litum og hugsað til þess að þjóna hvers konar blætum sem fólk kann að hafa. Ég ætla ekki að fara að dæma fólk fyrir hvað því finnst kynæsandi, það er eins fjölbreytt og mannfólkið er margt. En svo eru nokkrir hlutir sem koma fram sem tiltölulega eðlileg fyrirbæri, ekki endilega blæti, og eitt af þeim er það sem mig langaði að minnast á. Hvað, ef mér leyfist að spyrja, er aðlaðandi við að horfa á sextugan náunga að ríða gellu sem gæti auðveldlega verið barnabarnið hans? Mig langar ekki að sjá einhvern mann á aldur við pabba minn taka stelpu á mínum aldri. Það er bara sóðalegt fyrir mér, afsakið innilega... Og annað sem ég næ ekki; stelpur með strap-on. Hvað er heitt við stelpu með typpi? Ég hélt að það væri pointið, að við værum ekki með svoleiðis og værum þar af leiðandi áhugaverðar. Ég skil ekki fyllilega.

Og núna nenni ég ekki meiru, þetta var dálítið langt. Ég bæti því við að mér leið illa í japanska sendiráðinu, ég þarf að fara að drulla mér í þessa galdraritgerð og danski sjúkraþjálfarinn minn væri til í að heimurinn innihéldi einhyrninga og súkkulaðifljót.
Ætli maður bloggi ekki aftur eftir mánuð eða tvo...

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 01:55:08 / Minkurinn

Sagði að það kæmi meira

Sko!

Og mögulega meira seinna, ef ég fæ fleiri hugmyndir...


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 22:15:46 / Minkurinn

Sköpunarkraftur af dönsku bergi brotinn

Halló. Ég er veik. Þess vegna er ég að klastra saman bulli. Veió.
Eins og áreiðanlega mörgum öðrum leiðist mér stundum í dönskutímum. Í einum slíkum byrjaði ég að búa þetta til.

Þegar ég var búin að fylla síðuna ákvað ég að gera eitthvað meira úr þessu svo ég fór vel ofan í og krotaði á bakhliðina með blýanti, as so

og flutti mynstrið á þennan hátt yfir á lítinn striga sem ég átti ofan í skúffu, eins og sjá má hér.

Svo fór ég að mála og eyddi litla veikindadeginum mínum í það. Fullklárað verkið lítur því svona út

og biðst ég innilega afsökunar á því að vera ómáluð, veik og með skítugt hár en ég reyndi að fela mig bak við myndina.
En bíðið, það er meira! (Úff, beinþýtt) Já, ég á fleiri litla striga eins og hér var notaður og meiri málningu svo fylgist með, það verða fleiri myndir.
Fyrir utan það, þá held ég að ég fái ekki fjarvistir fyrir að mæta ekki í skólann í dag. 29. febrúar er ekki til...

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 18:28:05 / Minkurinn

Pantaloons, noun:

A nether habiliment of the adult civilized male. The garment is tubular and unprovided with hinges at the points of flexion. Supposed to have been invented by a humorist. Called "trousers" by the enlightened and "pants" by the unworthy.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 15:37:33 / Minkurinn

Halló!

Ég er geislavirk!

Baí!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 00:40:58 / Minkurinn

Ýmislegt athæfi

Jæja, á maður kannski að skrifa blogg með votti af innihaldi?
Ég get til dæmis skrifað um það að líkami minn er farinn að bila enn meira en venjulega, sem er náttúrulega voða gaman, og því er endalaust verið að reyna að finna eitthvað að mér. Málið er bara að þetta eitthvað vill ekki láta nafns síns getið.
En jú, samt er leitað áfram því þetta gengur eiginlega bara ekki lengur (fyrir nú utan það að ég get eiginlega ekki gengið lengur) og það er alltaf verið að potast eitthvað. Til dæmis fór ég í blóðprufu síðasta mánudag. Ég hef nokkrum sinnum farið í blóðprufur áður og ekkert skeð, kannski svimað ögn en það er bara vægt, tímabundið blóðleysi og ekkert mál. Núna var það öðruvísi. Bæði var tekið mun meira blóð en áður og ég var eitthvað illa fyrikölluð svo ég bara gerði mér lítið fyrir og leið út af. En uss, þetta er bara gaman, ný lífsreynsla, aldrei hef ég fallið í yfirlið áður..
Blóðprufan leiddi það í ljós að ég er ekki með gigt. Jess, ég get beðið í svona 30-35 ár áður en ég þarf að hafa áhyggjur af því kvikindi.
Svo núna eftir helgi (á mánudaginn þ.e.) fer ég í beinvefjaskann (eða eitthvað álíka, ég man ekki nákvæmlega hvað þetta heitir) og til þess að það geri sitt gagn þarf ég að byrja á því að láta sprauta í mig ísótópum um morguninn og koma svo nokkrum tímum seinna í skannið. Þá munu ísotópin (ísotóparnir? ísótópin?...) festa sig í bólgum, ef einhverjar eru, og gera þær greinilegar á myndinn. Sjibbí.
Aðeins frekar um þetta vesen á mér. Það er ennþá verið að reyna að laga mig með lyfi að nafni Lamictal, sem ég var upphaflega látin taka í 25mg töflum. Gallinn við þær er að þær eru óhúðaðar og bragðast eins og myglaðir ávextir. Þess vegna spurði ég lyfsalann, þegar ég fór til að fá 100mg töflurnar, hvort þær væru nú ekki til húðaðar. Nei, reyndar ekki, en þessar má tyggja eða leysa upp í vatni.
Sem er gagnlegt þegar þær bragðast eins og myglaðir ávextir.
Jæja, svefn, einhver?

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 17:57:51 / Minkurinn

Svo það sé á hreinu

Ég er ekki að skrifa niður tilvitnanir á latínu og hlusta á Waldsteinsónötuna í staðinn fyrir að vera að gera eitthvað eðlilegt.

Alls ekki.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 18:39:07 / Minkurinn

Who smokes the blunts? We smoke the blunts

Já, þetta blogg hefur misst líf og lit. Ég nenni bara svo sjaldan að skrifa eitthvað, sérstaklega þegar ég hef ekkert að skrifa.

Til þess að skrifa nú eitthvað: Ég er komin með öll húsgögnin sem mig vantaði. Ég fékk æðislegar jólagjafir. Ég er komin á flogaveiki/bipolarlyf (af hverju? ja ég veit ekki). Mér er illt í puttunum af því að ég er búin að vera að basla við sólóin úr Critical Acclaim. Kitty-chan hljómar betur með gaini. Íslenskukennslukonan mín er með mjög þreytandi rödd. Íslenskukennarinn minn er hins vegar akfeitur og með svalasta skegg í bransanum. A Little Piece of Heaven er skrítið lag, Afterlife og Critical Acclaim koma góð á móti. Ég hef aukið þó nokkuð við DVD safnið mitt og í beinu framhaldi orðið mér úti um þar til gerðan spilara. Jimmy Page eltist eitthvað voðalega snögglega, skyndilega hvíthærður.

Svona, ágætis skammtur af fullkomlega gagnslausum upplýsingum.

Photobucket

Meh, áður en þetta verður enn leiðinlegra og gagnslausara þá er þetta búið. Baí!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 01:34:53 / Minkurinn

Ár

Gleðilegt.

Sjahú.

Nisenhachi desu! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 17:47:25 / Minkurinn

Góðir landsmenn

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Hér má finna smá jólagleði.

Og til þess að vera nú pólitískt rétt, gleðilegar allar aðrar hátíðir sem fólk kann að halda upp á á þessum árstíma.

Góðar nætur og digrar dætur. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 23:44:03 / Minkurinn

Fyrirmyndin ógurlega

Já, mér datt svolítið í hug á leiðinni heim sem ég ákvað að deila með fólki. Here goes...

Hin sívinsæla Barbiedúkka hefur löngum verið talin afskaplega slæm fyrimynd fyrir litlar stelpur; hún er yfirmáta grönn, ljóshærð, bláeygð, með hvítar tennur sem skín í milli vel málaðra vara, nokkuð brjóstgóð, alltaf í háum hælum og fínum fötum. Hún á manninn Ken sem er einstaklega mjúkur maður (geldur og svona) en samt mjög karlmannlegur og keyrir um í sportbílnum með Barbie starandi á hann dreymnum augum úr farþegasætinu. Barbie er sumsé holdgervingur (er hægt að nota það orð yfir dúkku úr plasti? whatever...) alls sem við viljum ekki kenna dætrum okkar; að þær þurfi bara að vera sætar og fínar og lifa af launum manna sinna.

Þegar ég var lítil lék ég mér með Barbie, en verandi litla messed up barnið sem ég var þá varð ég ansi fljótt leið á því að klæða Barbie í mismunandi föt, gera hárið á henni fínt og láta hana og hinar Barbiearnar fara að versla eða eitthvað álíka. Mínar Barbie fóru yfirleitt að "leika sér" með Action Man (the greatest hero of them all). Sue me.

Og hér kemur punkturinn sem mér datt í hug. Afskaplega fáar gerðir af Barbie geta glennt út fótleggina. Þær standa með lærin þétt saman. Það er heldur ekki svo gott að koma þeim flestum á hnén. Og hvað segir þetta okkur? Jú, Barbie er alls ekki fyrirmyndin að því að sofa hjá til að komast áfram. Nei, Barbie er sú sem segir okkur að við getum fengið það sem við viljum með því að vera sætar og plata karlmenn í að þeir fái eitthvað frá okkur ef þeir gefa okkur það sem við viljum, og það finnst mér, persónulega, ekkert svo slæm taktík.

En það er kannski bara ég...

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 21:19:58 / Minkurinn

Plús

Ef ykkur vantar eitthvað til að koma ykkur í jólaskapið...
Jei? Jei. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan
Leitarbox